![Leikvöllur á þakinu](https://www.umhverfis.is/wp-content/uploads/rooftopPlayground6.jpg)
Leikvöllur á þaki húsa í Nörrebro í Kaupmannahöfn.
Í Norrebrö hverfi í Kaupmannahöfn er ekki vítt á milli húsa og því var fundið upp á því að útbúa leikvöll upp á þaki húsa. Þar var hægt að koma fyrir rúmgóðum sparkvelli, grassvæði og sólaraðstöðu, enda gætir þar sólar allan daginn eða mun lengur en í þröngum húsasundunum.
Hér segja myndir meira en mörg orð.
![Þakleikvöllur í Kaupmannahöfn](https://www.umhverfis.is/wp-content/uploads/RooftopPlaygr-679x1024.png)
Skemmtileg hugmynd þar sem hugsað hefur verið út fyrir kassann í leit að lausnum.