Nú er þessi garður sem var hannaður af okkur og byrjað var á 2017 orðinn gróinn og fallegur þar sem við fengum að skoða hann í fullum blóma nú í júlí, sjö árum síðar. Gróðursetning hófst þó ekki fyrr en fyrir um fjórum árum. Eigendur hans hafa svo séð um hann af mikilli alúð sem skilar sér margfalt og eiga hrós skilið. Innilega til hamingju með fallega garðinn ykkar.
Greinasafn fyrir merki: gróðurskipulag
Viðtal í garðablaði Morgunblaðsins
þann 26. maí 2023 birtist þetta viðtal í garðablaði Moggans.
Garðhús nýtt hjá hæðarmun lóðar.
Grasflöt er afmörkuð með þrifkanti. Glæsilegt útiborð „Þorparinn“ frá JAX handverk prýðir þennan fallega garð.
Fjölbreytileiki fjölæringa
Fjölæringar eru nær óteljandi og er gríðarlegur fjölbreytileiki í formi þeirra, stærð og lögun. Þeir geta verið allt frá jarðlægum upp í allt að tveir metrar að hæð. Lögun þeirra er sömuleiðis mjög mismunandi allt frá því að taka mjög lítið pláss upp í að breiða verulega vel úr sér geta jafnvel fyllt heilu fermetrana með tímanum, hvort sem er hátt eða lágt.
Oftast er spáð í blómsturtíma og blómsturlit plantnanna en það getur líka verið gaman að spá í lit og lögun laufblaða þeirra sem eru margskonar því oft er blómgunartími fjölæringa aðeins tvær til fjórar vikur. Þeim má þá raða upp þannig að úr verði talsvert líf og hreyfing í beðum þó blómin vanti. Það getur til dæmis verið mjög gagnlegt ef um skuggabeð er að ræða því engar plöntur blómstra án sólar. Dæmi um fjölæringa sem notaðir eru vegna blaðfegurðar eru ýmsar Brúskur, Bjarnarrót, Blágresi, Bronslauf, Dvergavör, Musterisblóm, Postulínsblóm, Stilklauf og Vínlandsroði
Best er að velja lágvaxnari tegundir ef svæðið er vindasamt en einnig geta lágvaxnari plöntur hjálpað til við að beina vindi frá þeim hávöxnu sé þeim plantað saman, hærri aftan til eða í miðju beði og þeim lægri í kring. Einnig er um að gera að nota fjölæringa sem undirgróður í runna og trjábeðum. Hér er dæmi um velheppnað beð þar sem fjölæringurinn lífgar upp á limgerði og fyllir upp í þar sem runninn hefur gisnað með árunum.
Það er um að gera að prófa sig áfram og hafa mottóið „ef planta deyr er það leiðinlegt en skapar líka ákveðið tækifæri fyrir nýja plöntu“ að leiðarljósi en þetta og margt fleira gagnlegt kom fram á afar áhugaverðu fjölæringa námskeiði hjá Gurrý í Garðyrkjuskólanum á Reykjum á vegum Endurmenntunar Landbúnaðarháskólans sem sótt var í vor. Kosturinn við fjölæringa fram yfir runna er að þá er auðvelt að flytja og færa til ef þeim líður ekki nógu vel þar sem þeim var plantað eða passa þar ekki lengur, nema Bóndarósir og Brúskur vilja ekki láta flytja sig. Einnig er hægt að velja „viðhaldslitlar“ tegundir ef markmiðið er lítið viðhald en blómsæll garður, það eru þá tegundir sem eru ekki skriðular eða taka smá tíma í að koma sér fyrir. Það eru til dæmis Burknar og skrautgrös eins og Bjarnarvingull og Blávingull einnig plöntur með kröftugan vöxt eins og Hjartasteinbrjótur og Austurlandalilja sem og laukplöntur eins og Stjörnulilja og Perlulilja.
Til að hindra vöxt illgresis er mikilvægt að ná góðri botnþekju með gróðurvalinu því þá nær einæra illgresisfræið ekki að spíra. Óhjákvæmilegt viðhald felst þó m.a. í vorhreinsun (visið lauf og stönglar fjarlægt), vökvun, hreinsun illgresis, uppbindingar (eftir þörfum), áburðargjöf og að skipta plöntum þegar þær fara að deyja í miðju eða þegar blómgun minnkar. Plönturnar geta einnig orðið of miklar um sig og er þá þörf á að minnka þær með því að stinga utan af þeim. Best er að velja plöntur eftir jarðvegsgerð og ræktunarskilyrðum til að halda viðhaldi í lágmarki.
Dæmi um snemmblómstrandi tegundir í apríl til maí eru Balkansnotra, Demantslilja, Fjallakögurklukka, Geitabjalla, Huldulykill og fleiri primulur, Nýrnajurt, Perlusjóður, Skógarblámi, Snæstjörnur, Tyrkjaíris, Vetrarblóm og Vorgoði
Dæmi um miðsumars blómstrandi tegundir í júní til júlí eru Alpabjalla, Bjarnarrót, Dvergblálilja, Engjablaðka, Fagurblágresi, Fjallasveipur, Geitaskegg, Hjartarfífill, Ígulstrokkur, Japansmura, Kastaníulauf, Kínahnappur, Logahetta, Mjallarsmæra, Munkahetta, Nunnuþrúgur, Postulínsblóm, Riddaraspori, Snægoðalykill, Venusvagn og Þórsmerkursteinbrjótur.
Dæmi um síðsumars blómstrandi tegundir eru Alpaþyrnir, Berghnoðri, Dvergadrottning, Engjakollur, Fagurhjálmur, Fjallastjarna, Garðabrúða, Garðakobbi, Hraundepla, Hærusunna, Indíánakrans, Japanshnoðri, Kasmírsalvía, Kvöldstjarna, Ljósahnoðri, Mararljós, Musterisblóm, Nálapúði, Nettluklukka, Randagras, Rósatrúður, Silkibygg, Sveipstjarna, Tígurblóm, Urðarhnoðri, Venusvagn og Þyrnihnetulauf.
Dæmi um fjölæringa sem standa lengi í blóma eru Alpadrottning, Dverghjarta, Hjartarblóm og Stjörnublaðka.
Nokkrar góðar leitarvélar og upplýsingavefsvæði má finna á vefnum eins og Félag garðplöntuframleiðenda, Listigarðurinn Akureyri, sem og á nokkrum vefsíðum gróðrastöðva eins og Gróðrastöðin Þöll, Gróðrastöðin Mörk, ágætislisti en án mynda er á Gróðrastöðinni Storð.
Heimildir:
http://www.lystigardur.akureyri.is/uploads/PERENNI.pdf
https://www.gardheimar.is/is/moya/extras/frodleikur/litrikir-fjolaeringar
https://skemman.is/bitstream/1946/25089/1/BS.%20ritger%C3%B0.%20SEH.pdf
Val gróðurs í ýmis hlutverk
Gróðri er plantað til að sinna ýmsum hlutverkum eins og veita skjól, loka einhverju af (bílaplani, inngangi, einkagarði ofl.), limgerði í stað skjólveggs, til prýði, samspil lita og margt fleira. Til þess að vel takist til er mikilvægt að velja réttar tegundir eftir því hlutverki sem þær eiga að gegna, varðandi vaxtarlag og -hraða, stærð og umfang.
Passa verður að velja ekki of hávaxinn gróður þar sem hann má ekki verða of stór, hraður vöxtur eykur þörf á miklum klippingum til að hemja vöxt. Betra er að velja tegundir sem henta í þá hæð sem maður vill ná.
Ef gróðurbeð er t.d. 1 m á breidd við gangstétt eða göngustíg verður að passa að umfang tegunda verði ekki mikið meira en það, því annars kallar það á margar klippingar til að halda gróðrinum í skefjun og hann loki ekki gönguleiðum. Umfangsmiklar tegundir kalla á mikið og gott pláss til að fá notið sín til fulls.
Tegundir sem nota á í limgerði eru valdar út frá því sem á að ná fram t.d. þétt, hægvaxið en sígrænt Sitkagreni.
Eða hraðvaxnar tegundir sem þarfnast klippinga 1-2 var á sumri eins og Víðtegundir.
Ef gróðurinn er til þess fallinn að loka fyrir umferð óviðkomandi gæti t.d. Sunnubroddur átt vel við til að gegna því hlutverki.
Hægt er að nota gróðurinn til að ná fram ákveðnum formum og mismunandi áferð með hinum ýmsu tegundum. Hér eru notuð strá í stað blóma með góðum árangri.
Lýsing við aðkomu húsa
Lýsing aðkomu gerir mikið fyrir húsið og garð þess þegar rökkva tekur og á Íslandi er hún nauðsynleg meiri part ársins. Með lýsingu er hægt að sýna augljóslega hvar aðalinngangurinn í húsið er.
Heimildir: https://www.pinterest.com/pin/224405993905763441/
Aðkoma skiptir máli
Nauðsynlegt er að skoða samspil húss og aðkomu frá götu sjónarhorni, vilji maður að hús og garður njóti sín sem best, jafnt þeim sem leið eiga framhjá og íbúum. Skipuleggðu framgarðinn þinn svo hann nýtist þér sem best, á hann bara að vera augnayndi eða hvaða not viltu hafa af honum? Allt fer þetta auðvitað eftir stærð hans og legu. Það getur farið vel á því að nota áhugaverðan og litríkan efnivið framan við húsið.
Gerið aðalinnganginn skýran og augljósan svo aðkomufólk þurfi ekki að velta því fyrir sér hvaða inngang eigi að nota.
Efnisval er mikilvægt og hér er leitast við að hafa beinar og skýrar línur á milli ólíkra efna. Fáir, einfaldir hlutir og hver plöntur í röðum eftir tegund.
Lágmarksbreidd gönguleiðar er 1 metri. Varist stefnulausa og óþarfa boga í gönguleiðum.
Varist að planta limgerði of nálægt göngustíg, gott er að hafa lággróður næst honum þá myndast betra pláss t.d. til að sveifla örmum á gangi, bera innkaupapokana að húsi sem og stóra hluti í flutningum.
Forðist að hafa margar tegundir plantna. Myndið frekar litla hópa af færri tegundum. Varist að planta trjám af handahófi. Mikilvægt er að hugsa fyrst um staðsetningu stórra trjáa og síðan annan gróður í kring.
Heimildir og myndir: https://www.pinterest.com/pin/224405993905763441/, https://homedesignlover.com/landscape-designs
Síðastir með haustliti
Við skipulag á plöntum er oft reynt að ná góðri breidd í fjölbreytileika og hafa „eitthvað í gangi“ á öllum tímum sumars og jafnvel árs. Algengt er að blanda saman blómstrandi runnum og plöntum eftir blómgunartíma og litum þannig að eitt taki við af öðru. Það mætti kannski líka hugsa það sama út frá haustlitum plantna, hvenær þær byrja og enda haustliti sína. Það er nefnilega sérlega fallegt að sjá tré og runna sem enn standa eftir með lauf sín í áberandi haustlit þegar flest hafa misst laufin. Eins og þessi fallegi reynir sem skartaði sínu fegursta í nóvember löngu eftir að fyrsta haustlægðin gekk yfir.
Drekabroddar voru áberandi í nóvember byrjun þegar aðrar tegundir voru búnar að fella laufin en þeir voru enn í sínum fegurstu haustlitum.
Litadýrð haustsins
Við val á gróðri er gott að hafa í huga ýmis atriði eins og fjölbreytileika í haustlitum tegunda. Raða tegundum saman að þannig að sérkenni þeirra fái notið sín á mismunandi árstíðum. Haustin eru sérlega skemmtilegur tími skærra og fallegra lita í rauðu, gulu og appelsínugulum tónum sem gleðja augu okkar. Tegundir sem mynda áberandi haustliti njóta sín enn betur þegar þær eru umluktar grænum lit annarra tegunda í bakgrunni og það sama á við um purpurarauð blöðin á Virginíuheggnum. Þau verða þannig meira áberandi og skera sig úr nærliggjandi gróðri.
Helstu tegundir sem fá fallega rauða haustliti eru t.d. : Bersarunni, Birkikvistur, Japanskvistur, Fjallarósablendingur, Gljámispill, Hélurifs og Kirtilrifs, Rósakirsi ´Ruby, Koparreynir, Skrautreynir, Úlfareynir, Sunnubroddur, Sveighyrnir og Þyrnirós ´Lovísa.
Helstu tegundir sem fá fallega gula haustliti eru t.d. : Flestar víðitegundir, kvistir og toppar, Alaskavíðir og Alaskaösp, Bersarunni, Bergreynir, Fjallarifs og birki, Birkikvistur, Bjarmarós, Blárifs, Blátoppur, Blöndustikill, Brekkuvíðir, Brúðurós, Dúntoppur, Fagursýrena, Fjallarós og blendingur, Fjallatoppur, Garðagullregn, Garðakvistill, Gljásýrena, Glótoppur, Glæsitoppur, Gráreynir, Gultoppur, Heggur, Hlíðaramall, Ígulrós, Japanskvistur ´Golden princess, Jörfavíðir, Körfuvíðir, Klukkutoppur, Mánakvistur, Loðvíðir, Myrtuvíðir, Perlukvistur, Rauðtoppur, Reyniblaðka, Runnamura, Selja, Silfurreynir, Síberíukvistur, Snjóber, Snækóróna, Sólber, Sunnukvistur og Surtartoppur.
Heimildir: http://k-sql.lbhi.is/yg/Utlit.aspx
Annar pistill á síðunni sem fjallar líka um haustliti.
Sparnaðarráð fyrir garðahönnun
Margar leiðir eru til að gera garðinn huggulegan á einfaldan hátt með lágum tilkostnaði.
Skipuleggðu garðinn áður en þú byrjar, hvernig viltu nota hann, hefurðu gaman af að rækta eða viltu hafa garðinn einfaldan og viðhaldslítinn?
Hvernig garð langar þig í? Nútímalegan með beinum línum og óþarfa prjáli? eða gamaldags með rúnnuðum lífrænum línum og formum þar sem auðvelt er að blanda saman ólíkum plöntum og hlutum? Gott er að hafa í huga að garðurinn passi við húsgerðina sem í garðinum er.
Hvaða plöntur eru nú þegar í garðinum, hverjar viltu hafa áfram? Gætu sumar sómt sér betur annars staðar, þá er um að gera að vera óhræddur við að flytja þær til. Með því að endurnýta gróðurinn sem fyrir er í garðinum ertu umhverfisvænn um leið og þú sparar. Tré getur til að mynda fengið nýja ásýnd og upplyftingu með því að raða grjóti í kring eða mynda hring og pláss í kringum það svo það fái notið sín til fulls ef á það er skyggt eða að því er þrengt.
Gott er að rissa garðin upp og skilgreina hvar hlutir og plöntur eiga að vera. Gerðu lista áður en farið er af stað að kaupa, með því má spara óþarfa kaup sem nýtast ekki sem skildi. Leitaðu ráða hjá fagfólki þegar þú þarft.
Einnig er hægt að skiptast á plöntum, fjölæringum og fræjum á ákveðnum tímum hjá Garðyrkjufélagi Íslands nú eða nágrönnum og vinum. Með því móti má fjölga tegundum og fá nýjungar í garðinn.
Sparaðu með því að gera sem mest sjálfur og taktu þér tíma í verkið, það veitir líka meiri gleði 🙂
Sótt á vef: http://homedesignlover.com/landscape-designs/10-money-saving-landscaping-tips/