Í þessari stóru fyrirtækjabyggingu í hjarta Chicago er að finna þakgarð á sjöundu hæð. Hann skartar þessum glæsilegu trjám og hér geta starfsmenn komist aðeins út undir bert loft í hádegishléinu sínu og andað að sér smá grænu í öllum grámanum til að næra sálina fyrir áframhaldandi inni vinnu. Græn þök og meiri gróður í stórborgir skiptir miklu máli til að kæla borgir niður þar sem vaxandi hiti er orðið vandamál.
Í Chicago er markvisst unnið að því að grænka borgina, t.d. með grænum þökum og á Michigan Stræti númer 900 hefur verið plantað blöndu af alls kyns grastegundum sem mynda skemmtilegt mynstur séð úr nærliggjandi hærri byggingum.
![900_North_Michigan_Ave_photo_Scott_Shigley-design_Hoerr_Schaudt_slideshow](https://www.umhverfis.is/wp-content/uploads/900_North_Michigan_Ave_photo_Scott_Shigley-design_Hoerr_Schaudt_slideshow-682x1024.jpg)
Hér sést vel hverju græn þök lægri húsanna breyta fyrir fólkið í hærri byggingunum, mismunandi tegundirnar eru vel hólfaðar niður og mynda þannig litamynstur.
![900_North_Michigan_Ave-Office_roof_photo_Scott_Shigley-design_Hoerr_Schaudt_slideshow](https://www.umhverfis.is/wp-content/uploads/900_North_Michigan_Ave-Office_roof_photo_Scott_Shigley-design_Hoerr_Schaudt_slideshow-300x148.jpg)
Græna svæðið í nærmynd þar sem íbúar komast upp á þak og njóta gróðursins.
![cityhall_greenroof_slideshow](https://www.umhverfis.is/wp-content/uploads/cityhall_greenroof_slideshow-300x168.jpg)
Á ráðhúsi Chicago má sjá villtari útfærslu af grænu þaki með yfir 100 tegundum.
Skemmtileg lausn þar sem útbúinn hefur verið garður fyrir eldri borgarana á 9. hæð í þjónustuíbúðablokk þar sem allir hafa möguleika á að komast út í smá náttúru.